Fréttir

Skráningarsíða Athafnavikunnar

 5 Comments- Add comment Written on 21-Sep-2010 by totlab

Nú þegar tæpir tveir mánuðir eru í að Athafnavikan hefjist hefur skráningarsíða hennar opnað. Við hvetjum alla, einstaklinga, félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki til að taka þátt í vikunni með því að halda viðburð í vikunni og skrá hér svo hann birtist í dagskrá vikunnar. Hvetjum alla til athafnasemi og snúum neikvæðri umræðu í jákvæða!!

Send to a friend

Athafnavika 2010

 2 Comments- Add comment Written on 26-Jul-2010 by totlab

15.-21. nóvember næstkomandi mun Global Entrepreneurship Week, Alþjóðleg athafnavika fara fram í þriðja sinn. Yfir 100 þjóðir taka þátt á einn eða annan hátt í vikunni en í fyrra voru Íslendingar með í fyrsta sinn. Á annað hundrað ólíkra viðburða fóru fram um allt land og því óhætt að fullyrða að Athafnavikan hafi verið vel heppnuð á Íslandi. Það var því mikil hvatning fyrir okkur þegar Innovit hlaut viðurkenningu fyrir skipulagningu Alþjóðlegrar athafnaviku á Íslandi. Verðlaunin voru veitt skipuleggjendum þeirrar þjóðar sem stóð fyrir flestum viðburðum í sínu heimalandi þegar tekið er mið af íbúafjölda. Ísland var jafnframt í 14. sæti allra þjóða, án höfðatöluviðmiðunar. Jonathan Orthmanns, frá Kauffman foundation og forseti Alþjóðlegrar athafnaviku á heimsvísu afhenti viðurkenninguna á Global Entrepreneurship Congress ráðstefnunni sem fram fór í Dubai í mars þar sem saman voru komnir fulltrúar frá skipuleggjendum Athafnaviku í 78 löndum.

Íslendingar eru án efa mjög athafnasöm þjóð en það sýndi sig í Athafnavikunni 2009 að hún á fullt erindi til okkar. Með því að halda og/eða sækja viðburð skapast tækifæri til að vekja jákvæða athygli á samfélaginu að vera þannig öðrum hvatning til athafnasemi. 

Send to a friend

Teygjustökk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

 20 Comments- Add comment Written on 27-Nov-2009 by totla

Á opnunarhátíð Athafnavikunnar fékk Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra fyrstu teygjuna afhenta. Hún ákvað að afhenda Þorsteini Inga Sigfússyni, forstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sína athafnateygju með þeim óskum að hann setti af stað skapandi aðgerð. Það var ekki að spyrja að viðbrögðunum hjá NMÍ því þau hreinlega settu af stað  "teygjustökk" en hér má lesa nánar um þetta glæsilega framtak. Við viljum þakka Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir gott og skemmtilegt samstarf í Athafnavikunni.

 

Send to a friend

Snilldarlausnir Marel 2009

 11 Comments- Add comment Written on 27-Nov-2009 by totla

Einn af megin viðburðum Athafnaviku, Snilldarlausnir Marels 2009,  er nú lokið. Nemendur á framhaldsskólastigi áttu að nota hugmyndaflugið til að auka virði herðatrés, taka hugmyndina upp og senda inn í keppnina. Katrín Jakobsdóttir tók á móti siguvegurum fyrr í dag og afhenti verðlaun fyrir bestu hugmyndina, frumlegustu hugmyndina og besta myndbandið. Það voru Marel, Samtök atvinnulífsins, Nova og Dominos Pizza sem studdu Snilldarlausnir.

Hægt er að nálgast myndböndin á heimasíðu Snilldarlausna.

 

Send to a friend

Athafnaviku lokið

 4 Comments- Add comment Written on 25-Nov-2009 by totla

Athafnavikunni lauk formlega sl. sunnudag. Það er þó nokkuð ljóst miðað við undirtektir þjóðarinnar og þátttöku í Athafnavikunni að Íslendingar sitja ekki auðum höndum. Það var sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með Athafnateygju Innovit sem hvatti svo marga til framkvæmda og víða myndaðist skemmtileg samkeppni innan vinnustaða og vinahópa. Í aðdraganda vikunnar hef ég kynnst svo mörgum athafnasömum og skemmtilegum einstaklinum og allir eiga þeir jákvætt hugarfar og dugnaðinn sameiginlegan. Ég vil þakka ykkur öllum fyrir hvatninguna og skemmtilegt samstarf! Þó svo að Athafnavikan sé liðin er engin ástæða til að setjast niður og bíða eftir þeirri næstu að ári heldur ætla ég að halda áfram að setja inn nokkrar fréttir og myndir frá skemmtilegum viðburðum Athafnavikunnar 2009.

-Þórhildur

Send to a friend

Alþjóðleg athafnavika á Höfn

 5 Comments- Add comment Written on 18-Nov-2009 by svenni57

Athafnavikan fór vel af stað hérna á Höfn og við erum með 65 atburði skráða sem hlýtur að teljast góður árangur í sveitarfélagi sem telur um 2.100 íbúa.

Kærleikstrefillinn lengist  og lengist og núna áðan voru krakkar úr fimmta bekk Grunnskóla Hornafjarðar að prjóna  þátttakendur í honum eru orðnir rúmlega  fjörutíu. Vinnu við málverkið lýkur í dag og eigum við von á leikskólabörnum frá leikskólanum Krakkakoti til okkar eftir hádegi. Mér skilst að fjöldi þeirra sem höfðu málað í gær væri í kringum fimmtíu manns. Í hádeginu 16. - 18. nóvember bauð Þekkingarnet Austurland upp á  hláturjóga.  Það er ferlega skemmtilegt og losar um uppsafnaða spennu, hláturjógað fer fram í miðrými Nýheima og höfum við sem tókum þátt í því fengið mikla athygli og hláturinn smitað út frá sér.  Ari Þorsteinsson hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands sýndi myndband frá Noregi þar sem búið var að útbúa litla útgáfu af virkjun sem byggði á þeim kröftum  sem myndast þegar saltvatn mætir fersku vatni eða osmósa. En hér í sýslunni eru góð skilyrði fyrir slíkar virkjanir. Ari hefur einnig verið að gera osmósugjörning með eggjum  hægt er að skoða þau hér í Nýheimum á frumkvöðlaganginum. Framhaldsskólinn í Austur Skaftafellssýslu var með þrautalausn í hádeginu en hún gekk út á það að þátttakendur áttu að koma eggjum á milli staða án þess að nota hendur. Þá var einnig sýndur sjónvarpsþátturinn Handan við Hornið, en það er afrakstur af verkefni sem þrír nemendur framhaldskólans unnu á námskeiðinu Sóknarbraut sem var haldið síðastliðið vor.

Athafnateygjurnar okkar Hjalta ganga nokkuð rösklega manna á milli og ef ég verð vör við að teygjurnar stoppi þá hika ég ekki við að ýta við fólki. Við viljum  að sem flestir bæjarbúar fái tækifæri til að vera með í þessum skemmtilega leik það er líka svo gaman að sjá hvað fólk er að fást við. Hægt er að sjá hvernig teygjurnar ganga um bæinn á www.athafnateygjan.is

Við viljum hvetja íbúa sveitarfélagsins til að kynna sér vel þá viðburði sem verða í boði og vera dugleg að mæta og taka þátt. Hér er slóðin að viðburðadagatalinu.

 http://www.rikivatnajokuls.is/media/vidburdir/athafnavika.pdf 

Með athafnakveðjum frá undirbúningshóp Björk Pálsdóttir hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Send to a friend

Uppbyggilegt hádegi hjá Auði Capital

 5 Comments- Add comment Written on 18-Nov-2009 by totla

Einn af fyrstu viðburðum Athafnavikunnar var áhugaverður og skemmtilegur hádegisfundur hjá Auði Capital. Halla Tómasdóttir og Vilhjálmur Þorsteinsson héldu þar erindi um Þjóðfundinn og Ísland 2.0. Hádegið var sannarlega uppbyggilegt og þéttsetið í salnum í nýjum húsakynnum Auðar Capital. Á mynd hér fyrir neðan má sjá Höllu Tómasdóttur afhenda Bjarneyju Harðardóttur hjá Íslandsbanka Athafnateygjuna sína.

Send to a friend

Nýtt hvatningarmyndband á aðalsíðu Alþjóðlegrar Athafnaviku!

 3 Comments- Add comment Written on 17-Nov-2009 by kristjanfreyr

Hillary Clinton, Gordon Brown, Sir Richard Branson, Carl Scramm, Lord Mandelson og Íslendingurinn Gunnar Hólmsteinn á meðal talsmanna sem koma fram í þessu hvatningarmyndbandi Alþjóðlegrar athafnaviku á heimsvísu!


Send to a friend

Formleg opnun Athafnaviku - Norræna húsið kl. 17

 5 Comments- Add comment Written on 16-Nov-2009 by svenni57
Alþjóðleg athafnavika hefst í dag og stendur til 22. nóvember næstkomandi.

Á einni viku munu 103 þjóðir í sex heimsálfum sameinast í Alþjóðlegri
athafnaviku með það að markmiði að hvetja fólk til að tileinka sér
nýsköpun, athafnasemi og frumkvöðlahugsun.

Hér á Íslandi eru 114 viðburðir skráðir, sjá nánar:
Dagskrá athafnaviku

Opnunarhátíð

Opnunarhátíð Alþjóðlegrar athafnaviku hefst kl. 17:00 í Norræna húsinu
mánudaginn 16. nóvember

Dagskrá opnunarhátíðar:


17:00 - Þórhildur Birgisdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegrar athafnaviku
ávarpar gesti
17:05 - Katrín Júlíusdóttir, Iðnaðarráðherra, setur athafnavikuna formlega
17:15 - Guðfinna S. Bjarnadóttir kynnir niðurstöður þjóðfundar
17:25 - Skemmtiatriði
17:30 - Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit
afhendir iðnaðarráðherra Athafnateygju Innovit nr. 1

Kynnir: Linda Ásgeirsdóttir, leikkona

Þegar formlegri dagskrá lýkur verður boðið upp á léttar veitingar
Send to a friend

Átöppuð kvenorka seld á Alþjóðlegri athafnaviku.

 11 Comments- Add comment Written on 15-Nov-2009 by totla

Átöppuð kvenorka seld á Alþjóðlegri athafnaviku.

Fjölmiðlakonan og hönnuðurinn Andrea Róbertsdóttir hefur elt nokkrar íslenskar konur síðustu misserin. Vigdís Finnbogadóttir, Jóhanna Kristjónsdóttir, Svava Johansen, Thelma Ásdísardóttir, Svafa Grönfeldt, Edda Heiðrún Backman, Þórey Edda Elísdóttir og Freyja Haraldsdóttir eru dæmi um konur og fyrirmyndir sem hún hefur elt á röndum um allan bæinn og tappað orkunni sem af þeim gustar á tóbakshorn. Ekki má svo gleyma allri þeirri yndislegu kvenorku sem Andrea safnaði á Grund og á Hrafnistu.

Íslenskar konur eru nefnilega einstakar og hér á landi eigum við fjölmargar frábærar fyrirmyndir. Um ræðir íslenskar konur sem hafa einstakt þor og kjark sem ekki veitir af að tappa á flöskur fyrir okkur hin. Tóbakshornin eru vísun í gamla tíma og þann karllæga heim sem við lifum í.  Þau verða stútfull af einstakri íslenskri kvenorku, ótal tegundir í boði en einnig verður hægt að leggja inn pöntun á sölustað.

Innihald tóbakshornsins hentar ungum Íslendingum á öllum aldri, jafnt konum sem körlum. Er þessi átappaða orka ekki síður hugsuð sem útflutningsvara því íslenskar konur; þeirra þekking, hæfileikar, orka, þor, dugnaður og mannauður er þannig saman settur að eftir er tekið um heim allan.

Tóbakshornin verða seld í nýrri verslun Eymundsson Skólavörðustíg 11 (áður SPRON) þriðjudaginn 17. nóvember 2009 kl. 12-18. Sá dagur er sérstaklega helgaður viðburðum athafnakvenna á Alþjóðlegri athafnaviku sem verður haldin á Íslandi 16. – 22. nóvember 2009.

 

Hornin kosta 1.000 íslenskar krónur og rennur allur ágóðinn í innkaup fyrir iðjuþjálfun heimilismanna á Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði og á Grund. Ef einhverjir hafa sérstakan áhuga á að styrkja málefnið enn frekar er hægt að útvega heilan gám, af þessari einstöku orku.

Konur eru konum bestar!

Send to a friend
  • Rss2
  • Atom
  • Add to my webjam page



 

Athafnasemi er lykillinn að bjartri framtíð

 

Alþjóðleg athafnavika (Global Entrepreneurship Week) verður haldin í þriðja sinn dagana 15. - 21. nóvember í meira en 100 löndum. Í fyrra var Ísland með í fyrsta sinn við frábærar undirtektir þjóðarinnar en á annað hundrað fjölbreyttra viðburða fóru fram um allt land í Athafnavikunni.

Markmið vikunnar er sem fyrr að vekja íslensku þjóðina til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið. Það geta allir gert með því að senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til samborgara sinna og láta hugmyndir sínar verða að veruleika, halda fjölbreytta viðburði eða taka þátt.Lesa meira

  Senda á Facebook


 

Alþjóðleg athafnavika um allan heim

 
Hér má sjá myndband frá Alþjóðlegri Athafnaviku frá árinu 2010 þar sem meðal annars er rætt við Hilary Clinton, Richard Branson og Gunnar Hólmstein, framkvæmdastjóra íslenska sprotafyrirtækisins CLARA.

 

Umsjónaraðili Athafnaviku á Íslandi

innovit_nyskopunarsetur

Innovit - Dunahaga 5, 107 Reykjavík - S: 552 5151  - innovit@innovit.is 


Loading …
  • Server: web1.webjam.com
  • Total queries:
  • Serialization time: 344ms
  • Execution time: 359ms
  • XSLT time: $$$XSLT$$$ms