Talsmenn

Hvað gera talsmenn Alþjóðlegrar athafnaviku?

Hlutverk talsmanna Alþjóðlegrar athafnaviku 2010 er að  minna á gildi athafnasemi fyrir samfélagið með umfjöllun og þátttöku í viðburðum. Þeir hafa ólíkan bakgrunn og vekja því athygli á ýmsum þáttum athafnasemi. Allir eiga þeir þó sameiginlegt að vera jákvæðar fyrirmyndir, trúa á mikilvægi nýsköpunar og athafnasemi og að hugsa stórt!

Talsmenn Athafnaviku 2010 eru:


 

Katrín Júlíusdóttir

Katrín Júlíusdóttir er talsmaður Alþjóðlegrar athafnaviku

Katrín Júlíusdóttir er iðnaðaráðherra og fer því með málefni nýsköpunar, sprotafyrirtækja, almenns atvinnulífs, orku og ferðaþjónustu í ríkisstjórn. Hún leggur áherslu á að við núverandi aðstæður sé iðnaðarráðuneytið um leið ráðuneyti tækifæranna enda með stoðkerfi atvinnulífsins, stuðning við frumkvöðlastarf og erlenda fjárfestingu á sinni könnu. Heildstæð orkunýtingarstefna og rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma, stuðningur við nýsköpunarfyrirtæki, rammalöggjöf um ívilnanir vegna erlendra nýfjárfestinga og efling nýrra tækifæra í ferðaþjónustu er meðal áhersluatriða í starfi iðnaðarráðherra.

Katrín var kjörin á Alþingi vorið 2003 í Suðvesturkjördæmi og hefur síðan lagt sérstaka áherslu á málefni heilbrigða samkeppni og stuðning við nýsköpun í atvinnulífinu. Katrín starfaði í iðnaðarnefnd Alþingis frá 2007, þar af sem formaður 2007 til 2009. Þá hefur Katrín starfað í menntamálanefnd, fjárlaganefnd, umhverfisnefnd, félagsmálanefnd og allsherjarnefnd. Hún var formaður þingmannanefndar EFTA 2007 til 2009.

Katrín nam mannfræði við Háskóla Íslands 1995 til 1999 og var m.a. fulltrúi í háskólaráði. Með námi starfaði hún fyrst sem innkaupastjóri og síðar sem framkvæmdastjóri barnafataverslana. Frá 2000 til 2003 starfaði Katrín sem verkefnastjóri og ráðgjafi hjá ráðgjafar- og hugbúnaðarhúsi.

Katrín á soninn Júlíus, fæddan 1999.


 

Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir er talsmaður Alþjóðlegrar athafnaviku

Katrín Jakobsdóttir er mennta- og menningarmálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda. Hún er varaformaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og hefur setið á Alþingi frá árinu 2007. Katrín var varaborgarfulltrúi fyrir Reykjavíkurlistann á árunum 2002 til 2006 og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum.

Katrín er með meistarapróf í íslenskum bókmenntum og skrifaði lokaritgerð um íslenskar glæpasögur. Hún hefur verið stundakennari við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Menntaskólann í Reykjavík og kennt í símenntunarmiðstöðvum um land allt. Þá hefur hún unnið við dagskrárgerð í ljósvakamiðlum, skrifað pistla, greinar og gagnrýni  fyrir dagblöð og tímarit og sinnt ritstjórnarstörfum fyrir ýmis bókaforlög.

Meðal þess sem Katrín hefur lagt áherslu á í störfum sínum er að í nýjum námskrám fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla verði lögð áhersla á lýðræði og gagnrýna og skapandi hugsun.


 

Gunnar Hólmsteinn

 

 

Gunnar Hólmsteinn er talsmaður Alþjóðlegrar athafnaviku

Gunnar er framkvæmdastjóri CLARA, þar er hlutverk hans að tryggja að 12-manna teymið sé að leggja sig fram, gera sitt besta og vinna að því að breyta heiminum.

Fyrir stofnun CLARA, var Gunnar vörumerkjastjóri Coca-Cola hjá Vífilfelli ásamt því að vinna markvisst að nýjum leiðum í markaðsrannsóknum. Hann hefur tekið mikinn þátt í þróunaraðstoð erlendis ásamt því að berjast fyrir bættu menntakerfi hérlendis. Gunnar er einnig sá yngsti sem hefur hlotið verkefnastyrk hjá Tækniþróunarsjóði Rannís.

Gunnar er athafnasamur hugsjónamaður í heimi markaðssetningar, markaðsrannsókna og nýrra miðla. Hann elskar að tala og flytur reglulega fyrirlestra um þessi viðfangsefni. 

Um CLARA 

CLARA fylgist með umræðunni á meðan hún er að gerast, hvort sem er í bloggi, á fréttasvæðum eða öðrum vettvangi þar sem neytendur geta tjáð sig og haft skoðanaskipti á Internetinu. Þetta er gert sjálfvirkt og á rauntíma með aðstoð gervigreindar. www.clara.is

 

 


 

Jón Gnarr


 

Jóhanna Björg Christensen


 

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir


 

Helga Björg Jónasardóttir


Loading …
  • Server: web2.webjam.com
  • Total queries:
  • Serialization time: 94ms
  • Execution time: 1578ms
  • XSLT time: $$$XSLT$$$ms